Vid_Landmannalaugar.jpg
Um landakort.is PDF  | Prenta |  Senda

Landakort.is er vefgátt fyrir landfræðilegar upplýsingar á Íslandi, sem ætlað er að vera vettvangur fyrir upplýsingamiðlun um landfræðilegt efni sem birtist á netinu.  Vefgáttin er landfræðileg tenglavefgátt (e. catalog geoportal) og er þess vænst að efni hennar nái bæði til sérfræðinga og almennings, en hún er ætluð öllum þeim sem þurfa að finna upplýsingar um landfræðileg gögn og landfræðileg málefni í víðasta skilningi á veraldarvefnum.

Landakort.is birtir tengla í vefsjár og vefsíður sem sýna kortagögn og annað landfræðilegt efni innanlands sem utan, auk vefsíðna um ferðamál. Vefsíðunum er raðað eftir völdum efnisflokkum sem aðgengilegir eru á forsíðu, en stutt skýring fylgir hverri skráningu. Leita má að efni eftir 12 meginflokkum og 40 undirflokkum og gera nákvæmari leit eftir völdum efnisorðum eða eftir stafrófsröðun. Á forsíðunni eru beinir tenglar í ýmsar íslenskar vefsíður og vefsjár á sviði landfræðilegra upplýsinga sem þægilegt er að geta nálgast á einum stað. Á forsíðunni koma fram upplýsingar um nýjustu vefsíðurnar sem tengdar hafa verið landakort.is og tímasetning síðustu uppfærslu. Þá eru birtar fréttir um það sem helst er að gerast hér á landi í útgáfumálum kortagagna og landupplýsingaþjónustu á netinu.
 
Landakort.is birtist fyrst á veraldarvefnum í mars 2007. Vefgáttin á eftir að taka breytingum hvað varðar útlit, efni, flokkun og skipulag eftir því sem verkefnið þróast og fleiri tenglar bætast við. Vefgáttin er sett upp á vefþjóni hjá Skýrr hf, en vefþjónustufyrirtækið Ráðgjöf.net er tæknilegur bakhjarl verkefnisins.

Eigandi og ábyrgðarmaður vefgáttarinnar er Þorvaldur Bragason landfræðingur og upplýsingafræðingur. Hann hefur starfað á þriðja áratug að verkefnum sem tengjast landfræðilegum upplýsingum og lauk m.a. meistaranámi í Háskóla Íslands í febrúar 2007 þar sem verkefni hans fjallaði meðal annars um upplýsingaaðgengi landfræðilegra gagna á veraldarvefnum.

Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða er áhugavert að fá álit og ábendingar frá notendum um gagnlegt og mikilvægt efni sem fellur vel að markmiðum vefgáttarinnar. Þeir sem hafa áhuga á að styðja uppbyggingu verkefnisins með því að senda inn ábendingar um efni og gagnlega tengla, vinsamlegast sendið tölvupóst í gegnum "Hafa samband" eða á tölvupóstfangið   (thbr hjá centrum.is).

Merki og auglýsingaborðar