|
Upplýsingar um kortasafn LMÍ á netinu |
PDF
|
| Prenta |
|
Senda
|
|
Júlí 2009
Landmælingar Íslands varðveita verðmætt kortasafn, en yfir 3500 útgáfur korta af Íslandi í safninu voru skráðar í stafræna kortaskrá á stofnunni fyrir nokkrum árum. Stærsti flokkur safnsins eru kort sem upphaflega komu frá kortlagningu Dana hér á landi á tímabilinu 1900 – 1944 og í framhaldi af því kort sem stofnunin hefur viðhaldið og gefið út frá því að hún var stofnsett árið 1956. Í safninu eru einnig útgáfur margra annarra aðila. Jafnt og þétt er unnið að því að skanna þessi kort til að tryggja að stafræn afrit séu til og til að bæta aðgengi að þeim upplýsingum sem á þeim má finna. Sú veflausn sem nú birtist á netinu var þróuð í þeim tilgangi að bæta aðgengi almennings að kortunum. Á þessum vef er hægt að fá ýmsar upplýsingar um kortin úr kortaskránni og einnig að skoða skannanir af kortunum sjálfum. Stefnt er að því að hægt verði að skoða öll kort sem Landmælingar Íslands eiga útgáfurétt á. Á vefnum er hægt að skoða margar útgáfur sömu kortanna frá mismunandi tímum og skoða breytingar. Ljóst er að margir munu fagna auknu aðgengi þessara eldri korta á netinu.
|