Vid_Hungurfit.jpg
Heilsuvefsjá Landlæknisembættisins PDF  | Prenta |  Senda

Desember 2009
Landlæknisembættið opnaði nýlega Heilsuvefsjá sem er landfræðileg kortavefsjá til birtingar upplýsinga um aldraða og öldrunarmál. Heilsuvefsjáin er ætluð stjórnvöldum og heilbrigðisstarfsmönnum sem og almenningi, en upplýsingarnar eru geymdar í svokölluðu vöruhúsi heilsufarsgagna. Landlæknisembættið hefur í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið unnið að uppbyggingu vöruhússins sem er nokkurs konar gagnagrunnur sem inniheldur ýmis gögn um heilsufar Íslendinga og heilbrigðisþjónustuna. Tilgangurinn með vöruhúsinu og vefsjánni er því að bæta aðgengi að og samþætta þau gögn sem þegar eru til hjá hinum ýmsu opinberu aðilum, svo sem Landlæknisembættinu, heilbrigðisráðuneytinu og Hagstofu Íslands. Vefsjáin og vöruhúsið eru liðir í því að búa til vöktunarkerfi heilbrigðisþjónustunnar (health monitoring system).

Ákveðið var að í fyrsta áfanga yrði safnað gögnum um aldraða (67 ára og eldri) og öldrunarþjónustu eftir landsvæðum. Sú ákvörðun var tekin í ljósi forgangsröðunar heilbrigðisyfirvalda sem snýr að því að bæta þjónustu við aldraða. Í framtíðinni er ætlunin að birta gögn um fleiri málaflokka og frá fleiri aðilum. Í vefsjánni er unnt að kalla fram upplýsingar um aðgengi, framboð og notkun á þjónustu fyrir aldraða sem og lýðfræðilegar upplýsingar, í formi korta og taflna. Dæmi um þá mælikvarða sem finna má á vefsíðunni eru: fjöldi dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarrýma í landinu, fjölda aldraðra sem nýta slík rými, fjöldi einstaklinga sem bíða eftir vistun samkvæmt vistunarmati, fjöldi lega og legudaga á sjúkrahúsum og fjöldi samskipta við heilsugæslu svo fátt eitt sé nefnt. Vefsjáin veitir notandanum talsverðan sveigjanleika í birtingu upplýsinganna þar sem notendur munu geta valið að skoða gögnin eftir árum, aldursbilum, kyni o.fl. Í síðari áföngum verkefnisins er ráðgert að bæta við upplýsingum um fjölmargt annað sem snýr að heilsufari og heilbrigðisþjónustu.
Tæknileg útfærsla vöruhússins var í höndum starfsfólks hjá Kögun hf., en fyrirtækið Samsýn ehf. hannaði vefsjána í samvinnu við Landlæknisembættið og heilbrigðisráðuneytið. Kortagrunnur var fenginn hjá Landmælingum Íslands.