Pistillinn
- Á nýjum „slóðum” (134)
27. febrúar, 2024Eitt mikilvægasta verkefnið á sviði upplýsingamiðlunar um landfræðileg gögn á netinu, er tenging við vefslóðir af ýmsu tagi. Framsetningu þeirra í veflausnum er gjarnan ætlað að gefa yfirsýn yfir landræn gögn og landfræðilegar vefþjónustur sem ekki er hægt að nálgast með samræmdum og/eða heildrænum hætti annars staðar á netinu. Núverandi verkefni undirritaðs á þessu sviði eru annars vegar vefgáttirnar tvær „landakort.is” (2007) og „landkönnun.is” (2018) og hins vegar kortasjárnar og jafnframt tilraunaverkefnin: „Vefkortasafnið” (2021) og „Loftmyndasafnið” (2021). Reyndar er fimmta verkefnið „Sérkortasafnið” tilbúið í prufuútgáfu, en bíður birtingar á opinberri vefslóð. Öll þessi verkefni eru byggð upp, fjármögnuð og rekin án opinberra styrkja eða fjárframlaga. (meira…) Lesa meira...
Eldri pistlar